Fotbolti.net
26.06.19 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Treyja Guðbjargar Gunnars á 1000 krónur

Treyja Guðbjargar Gunnars á 1000 krónur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðbjörg Gunnarsdóttir er með áritaða íslenska landsliðstreyju á lottó uppboði til styrktar Hjartavernd

Guðbjörg hóf sinn meistaraflokssferil í FH. Þaðan lá leiðin í Val þar sem hún spilaði 86 leiki á sex árum. Árið 2009 gekk Guðbjörg til liðs við Djurgarden. Þaðan fór hún í Avaldsnes, í kjölfarið til Turbine Potsdam og LSK. Nú er hún aftur komin til Djurgarden. Guðbjörg hefur leikið rúmlega sextíu A-landsliðsleiki.
Miðinn kostar aðeins 1000 krónur og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts.

Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 1. júli kl 19:00. Allur ágóði rennur til Hjartavernd.

Samtals hefur CharityShirts og leikmenn safnað 1.396.000 til góðgerðamála.
Treyja Guðbjargar Gunnars á 1000 krónur
Canon

Mynd: CharityShirts

Treyja Guðbjargar Gunnars á 1000 krónur
Canon

Mynd: CharityShirts

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.