Fotbolti.net
26.07.15 - 23:19
Björgvin Stefán Pétursson

Jonathan Glenn í Breiðablik (Staðfest)

Glenn og Arnar Grétars

Glenn og Arnar Grétars

Canon

Mynd: Blikar.is

Jonathan Ricardo Glenn er farinn til Breiðabliks á láni frá ÍBV út tímabilið. En Blikar hafa svo forkaupsrétt á framherjanum knáa sem að fékk silfurskóinn í fyrra með 12 mörk.

Breiðablik hefur verið í leit að framherja en sögusagnir voru um að Gary Martin og Þorsteinn Már væru á leið til félagsins.

En þeir hafa nú fengið Jonathan Glenn sem ætti að vera klár í slaginn gegn KR á morgun.
Heimasíða Blika:
Knattspyrnudeild Breiðabliks og ÍBV hafa náð samkomulagi um leigu á framherjanum Jonathan Ricardo Glenn út þetta keppnistímabil. Samningur gengur út á að Breiðablik leigir Glenn af ÍBV með forkaupsrétti Blika að honum í haust. Glenn sem er 27 ára gamall framherji frá Trinidad og Tobago hefur spilað með Eyjaliðinu undanfarin tvö ár.

Glenn var næst markahæsti leikmaður Pepsí-deildarinnar í fyrra með 12 mörk og hefur skorað 4 mörk í ár. Hann er nýkominn til baka til Ísland eftir að hafa spilað með landsliði þjóðar sinnar á GoldGup keppninni í Ameríku.

Blikar fagna þessum tíðindum enda er Glenn gríðarlega sterkur leikmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.