Fotbolti.net
26.07.15 - 09:55
Magnús Már Einarsson

Matthías Vilhjálmsson í Rosenborg (Staðfest)

Matthías Vilhjálmsson í Rosenborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Rosenborg

Rosenbog hefur keypt Matthías Vilhjálmsson frá Start en hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið í gær.

„Ég er ótrúlega stoltur af því að fá tækifæri til að spila með, að mínu mati, stærsta félagi Noregs,\" sagði Matthías.
Matthías kom til Start frá FH árið 2011 og hefur verið í lykilhlutverki hjá liðinu síðan þá.

Í sumar hefur Matthías skorað sjö mörk í fremstu víglínu hjá Start. Hjá Rosenborg mun hann meðal annars berjast við Alexander Söderlund um framherja stöðuna en þeir spiluðu saman hjá FH árið 2009.

„Ég mun fá erfiða samkeppni hjá Söderlund en ég tel að hann hafi verið besti framherji deildarinnar á þessu tímabili,\" sagði Matthías.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.