Fotbolti.net
26.07.15 - 23:59
Björgvin Stefán Pétursson

Sergio Romero til Manchester United (Staðfest)

Romero stekkur ekki bros

Romero stekkur ekki bros

Canon

Mynd: ManUtd.com

Manchester United tilkynnti rétt í þessu að þeir hafi náð samkomulagi við markvörðinn Sergio Romero.

Romero skrifaði undir þriggja ára samning með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Romero sem að er 28 ára gamall hefur spilað með Racing Club, AZ Alkmaar og Sampdoria núna síðast.

„Ég er alveg í skýjunum með það að koma til Manchester United. Að spila fyrir stærsta félag í heiminum er draumur að rætast fyrir mig. Louis van Gaal er frábær stjóri og ég get ekki beðið eftir því að byrja á þessum nýja og spennandi kafla.\" sagði Romero.

„Sergio er mjög hæfileikaríkur markmaður. Hann var ungur þegar ég var hjá AZ Alkmaar og ég er mjög ánægður að hann sé kominn til Manchester United. Hann var frábær á heimsmeistaramótinu síðasta sumar. Hann er frábær viðbót við hópinn og ég er spenntur að vinna aftur með honum.\" sagði van Gaal.

David de Gea hefur verið orðaður frá Manchester United í sumar en van Gaal vill þó halda honum en losa sig við Victor Valdes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.