26.08.26 - 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sarr verður ekki með Palace gegn City

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ismaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, hefur verið orðaður við Liverpool í dag. Senegalinn er að glíma við meiðsli og verður því ekki með Palace gegn Manchester City á föstudagskvöld í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
„Á þessum tímapunkti býst ég við því að hann verði áfram. Það er ekki auðvelt að fara þegar þú átt þrjú ár eftir af samningnum. Ismaila Sarr er að æfa einn því hann er að glíma við meiðsli í nára. Hann þarf tíma til að ná sér," sagði Pierre Sage, stjóri Palace, á fréttamannafundi í dag.

TENGT EFNI
Vilja stjarnfræðilega upphæð og Liverpool hefur ekki lagt fram tilboð
„Ég hélt hann myndi ná sér fyrr, en ég er enginn læknir. Ég bíð eftir honum og við erum að undirbúa hann fyrir endurkomu hér hjá okkur. Við viljum fá hann á völlinn eins fljótt og hægt er," sagði stjórinn.
„Það getur verið erfitt að þegar annað félag hefur samband, þú getur verið hikandi. En eins og staðan er, þá er hann hér hjá okkur."
Sage sagði þá að framherjinn Jean-Phillippe Mateta, sem hefur verið orðaður í burtu, vilji vera hjá Palace.