ÍA bjargaði sér frá falli úr Pepsi Max-deild karla í lokaumferðinni í gær á ótrúlegan hátt.
Skagamenn lentu 2-0 undir gegn Keflavík en skoraði síðan þrjú mörk á 7 mínútum og tryggði sigurinn. Á sama tíma tapaði HK gegn Breiðablik sem varð þeim að falli.
ÍA var í miklum markvarðarvandræðum en aðalmarkvörðurinn Árni Snær Ólafsson sleit hásin eftir þrjár umferðir. Dino Hodzic kom inn í liðið í hans stað en hann þótti ekki standa sig nægilega vel, eftir sex leiki hjá Dino kom Árni Marinó Einarsson inn í liðið.
Árni er fæddur 2002 en Hrafnkell Freyr Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson töluðu um hann í podcast þættinum Dr. Football í sumar en þeir höfðu ekki mikla trú á honum. Árni ryfjaði þetta upp á Twitter í morgun.
Gleymi þessu ekki 🥱 pic.twitter.com/u2AC7kBUPX
— arni marino (@arni_marino) September 26, 2021
Athugasemdir