Thiago Alcantara, leikmaður Liverpool, verður líklega ekki með liðinu þar til eftir landsleikjahléð í október.
Þetta sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í gær eftir leik við Brentford sem endaði með 3-3 jafntefli.
Þessi þrítugi leikmaður meiddist á kálfa í 3-0 sigri á Crystal Palace á dögunum og var ekki með í leiknum í gær.
Klopp greindi frá því að líklegast væri að Thiago myndi snúa aftur eftir hléð sem fer af stað í næsta mánuði.
„Ég held að allt fyrr en það sé ekki möguleiki," sagði Þjóðverjinn á meðal annars. „Við þurfum að sjá til."
Thiago kom til Liverpool frá Bayern í fyrra en hefur ekki alveg náð að sýna sínar bestu hliðar á Anfield.
Athugasemdir