Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 26. október 2020 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bellingham byrjar vel hjá Dortmund: Sancho er mér mikilvægur
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur stært sig af því að byggja lið sitt á ungum og efnilegum leikmönnum undanfarin ár. Í dag eru Jadon Sancho og Erling Braut Haaland skærustu stjörnur liðsins en þeir eru báðir fæddir árið 2000.

Ungir leikmenn eru stöðugt að ryðja sér leið inn í aðalliðið og er félagið ekki smeykt við að borga fyrir unga leikmenn og gefa þeim traust til að spila með aðalliðinu. Jude Bellingham, 17 ára miðjumaður, er fullkomið dæmi en Dortmund keypti hann af Birmingham í sumar fyrir um 25 milljónir punda eftir samkeppni frá Manchester United.

Ungir leikmenn virðast njóta sín í botn hjá Dortmund og það tekur þá yfirleitt lítinn sem engan tíma að aðlagast, líkt og gerðist með Haaland. Bellingham hefur komið við sögu í öllum leikjum Dortmund á tímabilinu nema einum, 3-0 sigri gegn Schalke um helgina.

Bellingham hefur verið sex sinnum í byrjunarliði Dortmund á tímabilinu og er í harðri baráttu við Julian Brandt um byrjunarliðssæti. Hann skoraði í sínum fyrsta byrjunarliðsleik, 0-5 sigri gegn Duisburg í bikarnum.

„Sancho er mér gífurlega mikilvægur og það er ekki bara því við erum frá sama landi og tölum sama tungumál. Það sem er mikilvægast er hvernig hann leggur handlegginn utan um mig og aðra unga leikmenn, hvernig hann hvetur okkur áfram og veitir sjálfstraust," sagði Bellingham þegar hann var spurður um samband sitt við Sancho.

Giovanni Reyna, 17 ára sonur Claudio Reyna, er einnig í liði Dortmund og hefur verið að fá mikinn spiltíma á upphafi tímabils. Hann og Haaland eru góðir félagar en feður þeirra mættust reglulega í ensku úrvalsdeildinni í kringum aldamótin.

Þá er búist við að Youssoufa Moukoko, sem verður 16 ára í nóvember, bætist við samkeppnina um byrjunarliðssæti. Hann þykir mikið undrabarn en má ekki spila með aðalliðinu fyrr en hann er búinn að eiga afmæli.
Athugasemdir
banner
banner
banner