Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. nóvember 2020 21:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta: Svona þarf Pepe að spila í öllum leikjum
Mynd: Getty Images
„Ég er mjög sáttur eftir vonbrigðin á þeim neikvæðu atburðum sem áttu sér stað í síðsta leik þá viltu sjá svona frammistöðu og ég sá á Pepe frá fyrstu mínútu að hann var klár í þennan leik," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, um Nicolas Pepe eftir 3-0 sigur á Molde í Evrópudeildinni.

Pepe skoraði fyrsta mark leiksins og var valinn maður leiksins á Sky Sports eftir leik. „Mér fannst hann standa sig mjög vel, skoraði eitt og hefði getað skorað tvö í viðbót. Hann bjó til stöður í leiknum og vann vel fyrir liðið, ég er mjög sáttur með það."

„Við vitum allir hvað hann er góður og það er alltaf spurninginn hversu oft hann gtur sýnt það og hjálpað í öðrum hlutum leiksins."

„Í dag sýndi hann hversu megnugur hann er og hann þarf að sýna það áfram því hann getur það. Hann er ógn á síðasta þriðjungi vallarins, hann getur gert ótrúlega hluti með boltann, skotið, gefið fyrir og farið framhjá andstæðingnum. Þetta er það sem við getum búist við af honum,"
sagði Arteta.
Athugasemdir
banner
banner