Fotbolti.net
27.01.22 - 12:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Burnley hefur áhuga á Weghorst - Orsic á leiðinni

Burnley hefur áhuga á Weghorst - Orsic á leiðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur áhuga á Wout Weghorst framherja Wolfsburg. Það eru enskir miðlar sem greina frá þessu.

Stjóri Burnley, Sean Dyche, vill ólmur fá inn framherja í stað Chris Wood sem seldur var til Newcastle fyrr í þessum mánuði. Weghorst, sem er 29 ára Hollendingur, myndi leysa það vandamál.
Viðræður eru á byrjunarstigi en sömu sögu er ekki að segja af Mislav Orsic, vængmanni Dinamo Zagreb.

Króatinn verður líklega kynntur á næstu tveimur sólarhringum og mun Burnley greiða um sjö milljónir punda fyrir kappann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.