Fotbolti.net
27.02.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Carrick um Maguire: Erfitt að verðleggja reynslu

Harry Maguire varnarmaður Manchester United.

Harry Maguire varnarmaður Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, segir að það sé erfitt að verðleggja reynslu. Hann ræddi um varnarmanninn Harry Maguire á fréttamannafundi í dag en samningur Maguire rennur út í sumar.

Viðræður hafa verið í gangi milli Maguire og félagsins.
Telja það „klikkun" ef Maguire fær ekki nýjan samning
TENGT EFNI

Telja það „klikkun" ef Maguire fær ekki nýjan samning

„Innan hópsins er þetta jafnvægi; þú vilt unga spennandi leikmenn sem geta bætt sig, leikmenn sem eru á hátindinum og svo er reynsla gríðarlega mikilvæg," segir Carrick.

„Það er erfitt að setja verðmat á reynslu. Harry hefur öðlast gríðarlega reynslu hjá þessu félagi. Hann er heillandi karakter og hefur átt frábæran feril, vonandi er meira framundan. Við vitum hvernig leikmaður hann er og hvað hann getur. Hann var frábær í síðasta leik; reynsla hans og karakter hjálpa okkur. Hann leggur sig alltaf fram og hefur verið okkur mikilvægur."

Manchester United á heimaleik gegn Crystal Palace klukkan 14 á sunnudaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Newcastle8-211
8Aston Villa8-311
9Leeds7+310
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.