Nú í hádeginu var dregið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Leikirnir í 16-liða úrslitum verða spilaðir 12. mars og 19. mars.
Landsliðsmennirnir Elías Rafn Ólafsson og Hákon Arnar Haraldsson munu báðir etja kappi við enskt úrvalsdeildarlið.
Elías mun standa vaktina í marki Midtjylland gegn Nottingham Forest. Liðin mættust í Skírisskógi í deildarkeppninni og þar vann danska liðið 3-2 útisigur.
Hákon og félagar í Lille mæta Aston Villa og þá drógust Sverrir Ingi Ingason og félagar í Panathinaikos gegn Real Betis. Meðal annarra leikja í 16-liða úrslitum er ítalskur slagur milli Roma og Bologna.

16-liða úrslitin:
Freiburg - Genk
Roma - Bologna
Braga - Ferencvaros
Porto - Stuttgart
Real Betis - Panathinaikos
Nottingham Forest - Midtjylland
Lille - Aston Villa
Lyon - Celta Vigo
Athugasemdir