Lengjudeildin hófst með rosalegri flugeldasýningu í Mosfellsbænum á föstudagskvöld þegar ÍR vann 7-4 útisigur gegn Aftureldingu í algjörlega ótrúlegum leik.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Stefán Þór Pálsson - ÍR
Framherjinn átti nánast fullkominn leik. Hann skoraði tvö og lagði upp tvö ofan á það. Hann var að auki mjög öflugur þegar liðið pressaði.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Stefán Þór Pálsson - ÍR
Framherjinn átti nánast fullkominn leik. Hann skoraði tvö og lagði upp tvö ofan á það. Hann var að auki mjög öflugur þegar liðið pressaði.
Jóhann Birnir Guðmundsson er þjálfari umferðarinnar og þá er Emil Nói Sigurhjartarson í liðinu. Hann skoraði tvö mörk og átti stoðsendingu.
Þróttur vann 2-0 sigur á Njarðvík í stórleik fyrstu umferðar. Sigurður Egill Lárusson var valinn maður leiksins, Hlynur Þórhallsson var öflugur í vörninni og Tryggvi Snær Geirsson kom af krafti inn af bekknum.
Hinn sautján ára gamli Andri Valur Bergmann Steingrímsson var valinn maður leiksins í 1-1 jafntefli Völsungs og Leiknis. Hann minnir um margt á Hallgrím Mar bróður sinn.
Hjörvar Daði Arnarsson var maður leiksins í 1-1 jafntefli Vestra og Grindavíkur. Damir Muminovic var öflugur í hjarta varnarinnar.
Kári Sigfússon var með þrjár stoðsendingar í 3-0 sigri Fylkis á Ægi. Birkir Eyþórsson var valinn maður leiksins.
Karl Ágúst Karlsson skoraði tvö mörk fyrir HK í 4-1 sigri gegn Gróttu.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. ÍR | 1 | 1 | 0 | 0 | 7 - 4 | +3 | 3 |
| 2. HK | 1 | 1 | 0 | 0 | 4 - 1 | +3 | 3 |
| 3. Fylkir | 1 | 1 | 0 | 0 | 3 - 0 | +3 | 3 |
| 4. Þróttur R. | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 0 | +2 | 3 |
| 5. Grindavík | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 6. Leiknir R. | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 7. Vestri | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 8. Völsungur | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 9. Njarðvík | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 2 | -2 | 0 |
| 10. Afturelding | 1 | 0 | 0 | 1 | 4 - 7 | -3 | 0 |
| 11. Grótta | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 4 | -3 | 0 |
| 12. Ægir | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 3 | -3 | 0 |



