Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 27. maí 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Muller líkir hraða Davies við The Road Runner
Alphonso Davies, vinstri bakvörður Bayern Munchen, sýndi enn og aftur hraða sinn þegar hann hljóp Erling Braut Haaland, framherja Dortmund, uppi í toppslag þýsku Bundesligunnar í gær.

Davies á met þýsku deildarinnar yfir sneggsta sprett sem hefur verið mældur síðan mælingar hófust 2011 en þá hljóp hann á 35,6 kílómetra hraða. Davies átti 42 spretti í leiknum í gær og sá hraðasti var á 35,3 kílómetra hraða.

Thomas Muller, liðsfélagi Davies, líkti honum við teiknimyndapersónuna Road Runner eftir leikinn í gær.

„Stundum er hann ekki í bestu stöðunni á vellinum og andstæðingurinn hugsar, 'Oh, ég er með tíma, ég er með tíma.' Síðan allt í einu, 'meep, meep! Meep, meep!' The Road Runner, the FC Bayern Road Runner kemur og stelur boltanum."



Athugasemdir
banner