Fotbolti.net
27.06.15 - 11:00
Eyþór Ernir Oddsson

Okazaki til Leicester (Staðfest)

Okazaki er á leið til Leicester

Okazaki er á leið til Leicester

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City hefur styrkt hóp sinn fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en í dag keyptu þeir japanska framherjan Shinji Okazaki frá Mainz í Þýskalandi
Okazaki skrifaði undir fjögurra ára samning við Leicester en kaupverðið er ekki uppgefið.

Okazaki er 29 ára gamall og á að baki 93 landsleiki með Japan og hefur skorað í þeim 43 mörk, en hann er þriðju markahæsti leikmaður í sögu japanska landsliðsins.

Hann hóf feril sinn hjá Shimizu S-Pulse en þaðan var hann keyptur til Stuttgart árið 2011. Okazaki skoraði tólf mörk í 32 leikjum fyrir Mainz á síðustu leiktíð.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað. Að spila í ensku úrvalsdeildinni er minn draumur og ég mun gera allt sem ég get til að hjálpa Leicester City. Ég mun gera mitt besta til að sýna hvernig ég spila og reyna að búa til mörk fyrir stuðningsmennina.\"

„Ég horfði á hvern einasta leik á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en þeir eru ekki allir auðveldir. Sumir voru mjög erfiðir. Í síðustu leikjum hafa áhorfendur verið frábærir og leikmenn svöruðu. Þetta var frábær niðurstaða í lok tímabilsins hjá Leicester,\"
sagði Okazaki.

Heimild: SkySports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.