27.06.15 - 09:57
Eyþór Ernir Oddsson
Tevez til Boca Juniors (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlos Tevez, framherji Juventus, er á leið aftur til Boca Juniors en þetta var staðfest nú í morgun.
Tevez átti eitt ár eftir af samningi sínum við Juventus og hefur aldrei farið leynt með þá ósk sína að enda feril sinn í heimalandi sínu, Argentínu.
Tevez vakti fyrst athygli hjá Boca 16 ára gamall en þaðan fór hann til Corinthians í Brasilíu. Fyrir níu árum var hann og Javier Mascherano síðan óvænt keyptir til West Ham United.
Hann var síðan keyptur til Manchester United en hann hefur spilað fyrir báða stóru klúbbana í Manchester.
„Þetta er dagur gleðinnar og mikillar ánægju. Endurkoma Carlos Tevez er frábært augnablik á hans ferli og eru frábærar fréttir fyrir alla aðila, stuðningsmenn Boca og argentískan fótbolta.\"
„Að fá Carlos er mikið stökk fyrir gæðin í okkar liði,\" segir Daniel Angelici, forseti Boca.

Heimild: SkySports