Fotbolti.net
27.06.26 - 17:07
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Dalvík/Reynir vann fimmta leikinn í röð eftir dramatík

Dalvík/Reynir vann fimmta leikinn í röð

Dalvík/Reynir vann fimmta leikinn í röð

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Dalvík/Reynir vann fimmta sigur sinn í röð er liðið marði 1-0 sigur á KFA í 2. deild karla í dag. Sigurmarkið kom á fjórðu mínútu í uppbótartíma.
Dalvíkingar hafa verið heitir að undanförnu og eru farnir að gera sig gildandi í toppbaráttunni.

Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa átti hörkuskot úr aukaspyrnu á 25. mínútu sem markvörður KFA varði en að öðru leyti var fyrri hálfleikurinn fremur rólegur.

Gestirnir voru sterkari í síðari hálfleik. Eggert Gunnþór Jónsson fékk dauðafæri undir lokin en Þröstur Mikael Jónsson henti sér fyrir skotið og kom í veg fyrir mark.

Dalvíkingar áttu hins vegar síðasta orðið. Það var Áki Sölvason sem skoraði eina mark leiksins seint í uppbótartíma með marki beint úr hornspyrnu og tryggði með því dramatískan sigur.

Dalvík/Reynir hefur nú unnið fimm leiki í röð og er í öðru sæti með 19 stig, aðeins stigi á eftir toppliði Hauka. KFA er í 10. sæti með 10 stig.

Víkingur Ólafsvík vann 1-0 sigur á KFG. Naim El Hmaidi skoraði sigurmarkið eftir klukkutíma leik. Ólsarar eru í 7. sæti með 14 stig en KFG er með 12 stig í 8. sæti.

Kormákur/Hvöt vann sannfærandi 4-0 sigur á Hvíta riddaranum. Pere Belmonte og Haukur Ingi Ólafsson sáu til þess að Blönduósingar fóru með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn og þeir Guzman Díaz Scarone og Sigurður Bjarni Aadnegard bættu við tveimur mörkum undir lok leiks.

Kormákur/Hvöt er í 5. sæti með 15 stig en Hvíti riddarinn er í 9. sæti með 11 stig.

Víkingur Ó. 1 - 0 KFG
1-0 Naim Aaras EL Hmaidi ('60 )

Dalvík/Reynir 1 - 0 KFA
1-0 Áki Sölvason ('94 )
Lestu um leikinn

Kormákur/Hvöt 4 - 0 Hvíti riddarinn
1-0 Pere Belmonte ('13 )
2-0 Haukur Ingi Ólafsson ('41 )
3-0 Guzman Díaz Scarone ('86 )
4-0 Sigurður Bjarni Aadnegard ('88 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar10+1120
2Dalvík/Reynir10+619
3Kári10+1217
4Selfoss10+116
5Kormákur/Hvöt10+1215
6Fjölnir10+414
7Víkingur Ó.10-414
8KFG10-1512
9Hvíti riddarinn10-411
10KFA10+210
11Þróttur V.10-710
12Magni10-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.