Fotbolti.net
27.06.26 - 18:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Quansah leysir James af hólmi í kvöld

Quansah leysir James af hólmi í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Miklar vangaveltur hafa verið um byrjunarlið Englands gegn Panama í lokaleik L-riðils á HM í kvöld.

The Athletic greinir frá því að Jarell Quansah, leikmaður Leverkusen, muni leysa Reece James af hólmi í hægri bakvarðarstöðunni.
Það hefur komið fram í breskum fjölmiðlum undanfarna daga að James muni ekki geta tekið þátt í leiknum vegna meiðsla aftan í læri.

Þá mun Morgan Rogers, leikmaður Aston Villa, byrja sinn fyrsta leik á mótinu en hann hefur komið inn á sem varamaður í báðum leikjunum til þessa. Quansah hefur setið á bekknum í báðum leikjunum.

England er svo gott sem komið áfram. Liðið er á toppnum með 4 stig eins og Gana. Króatía er í 3. sæti með þrjú stig en Panama rekur lestina án stiga. Ef England lendir í 3. sæti mun liðið að öllum líkindum fara áfram sem eitt af átta bestu liðunum í 3. sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.