Fotbolti.net
27.06.26 - 16:57
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Spennandi lokamínútur í fjögurra marka jafntefli

Mattías Kjeld skoraði jöfnunarmark Gróttu undir lok leiks

Mattías Kjeld skoraði jöfnunarmark Gróttu undir lok leiks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Völsungur 2 - 2 Grótta
1-0 Gestur Aron Sörensson ('7 )
1-1 Tristan Freyr Ingólfsson ('55 )
2-1 Elfar Árni Aðalsteinsson ('84 , víti)
2-2 Mattías Kjeld ('87 )
Lestu um leikinn
Völsungur og Grótta gerðu 2-2 jafntefli í spennandi leik í Lengjudeild karla á GPG-vellinum á Húsavík í dag.

Húsvíkingar hafa verið að komast á rétta braut í síðustu leikjum og mættu ferskir til leiks. Gestur Aron Sörensson kom Völsungi yfir á 7. mínútu þegar hann stýrði boltanum í netið eftir fyrirgjöf Arnars Pálma Kristjánssonar.

Gróttumenn svöruðu ágætlega og fengu góð færi til að jafna, sérstaklega Björgvin Brimi Andrésson sem slapp í gegn en setti boltann framhjá.

Gestirnir sóttu stíft í upphafi síðari hálfleiks og uppskáru jöfnunarmark þegar laust skot Tristans Freys Ingólfssonar hafnaði í netinu.

Grótta hélt áfram að sækja án afláts en fékk skell þegar um sex mínútur voru eftir. Þá var Tryggvi Grani Jóhannsson tekinn niður í teignum af Guðmundi Rafni Ingasyni, markverði Gróttu.

Elfar Árni Aðalsteinsson kom Völsungi aftur yfir af vítapunktinum en sú forysta entist aðeins í nokkrar mínútur. Mattías Kjeld jafnaði metin skömmu síðar og tryggði Gróttu stig.

Grótta er í 8. sæti með 13 stig en Völsungur situr áfram á botninum með 7 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.11+1323
2Fylkir11+421
3Vestri12+220
4Afturelding10+819
5HK11+219
6Leiknir R.11+218
7Njarðvík11+214
8Grótta9-512
9ÍR11-611
10Grindavík10-39
11Ægir11-88
12Völsungur10-116
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.