Fotbolti.net
27.06.26 - 16:55
Brynjar Ingi Erluson

Söguleg stund fyrir Grænland

Nemo Thomsen

Nemo Thomsen

Canon

Mynd: Fredericia

Grænlendingar eignuðust formlega sinn fyrsta atvinnumann er sóknarmaðurinn Nemo Thomsen skrifaði undir fjögurra ára samning við danska B-deildarliðið Fredericia í gær.
Thomsen er 22 ára gamall og fór á kostum með C-deildarliði Brabrand á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tólf mörk.

Hann gekk formlega í raðir Fredericia í gær og um leið var skrifuð saga fyrir grænlenskan fótbolta, enda er hann fyrsti Grænlendingurinn til að skrifa undir atvinnumannasamning.

„Þetta er stór dagur fyrir mig og alla fjölskylduna. Ég er bæði ánægður og stoltur að skrifa undir minn fyrsta atvinnumannasamning og að vera fyrsti Grænlendingurinn til að ná því. Þetta er risastórt,“ sagði Thomsen.

Thomsen fæddist á Grænlandi en fór ungur að árum til Danmerkur þar sem hann lék með yngri flokkum Kolding og SönderjyskE.

Morten Rutkjær, þjálfari grænlenska landsliðsins, segir þetta vera risastórt augnablik fyrir þjóðina og vonast til að sjá fleiri feta sömu leið í framtíðinni.

„Þetta verður skrifað í grænlensku fótboltasögubækurnar og er innblástur fyrir heila þjóð,“ sagði Rutkjær.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.