Fotbolti.net
27.07.26 - 09:22
Elvar Geir Magnússon

Hinn 59 ára Miura skoraði sitt fyrsta mark síðan 2022

Hinn 59 ára Miura skoraði sitt fyrsta mark síðan 2022
Canon

Mynd: EPA

Kazuyoshi Miura, elsti atvinnufótboltamaður heims, skoraði sitt fyrsta mark í næstum fjögur ár, 59 ára að aldri, fyrir japanska C-deildarliðið Fukushima United.
Miura skoraði á 52. mínútu og kom Fukushima í 5-0, en leikurinn endaði með 7-0 sigri liðsins gegn Iwaki Furukawa í keppni um Keisarabikarinn (Emperor's Cup).

Þetta er fyrsta mark hans í opinberum leik síðan hann skoraði fyrir Suzuka PG (nú Atletico Suzuka) gegn FC Osaka í nóvember 2022.

Hann er kallaður „King Kazu“ í Japan og er einn af vinsælustu íþróttamönnum landsins; hann var andlit J-deildarinnar þegar hún hóf göngu sína árið 1993.

Hann hóf ferilinn með brasilíska liðinu Santos árið 1986 og hefur einnig leikið með félagsliðum á Ítalíu, í Króatíu og Ástralíu.

Lánssamningur hans við Fukushima, frá Yokohama FC í J2-deildinni, er til júní 2027. Miura samdi við Yokohama árið 2005 en hefur ekki spilað mínútu fyrir félagið síðan 2020.

Hann skoraði 55 mörk í 89 landsleikjum fyrir Japan og hefur áður talað um að ætla að spila fram á sjötugsaldurinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.