Fotbolti.net
27.07.26 - 09:16
Elvar Geir Magnússon

Infantino segir gagnrýnendur spúa hatri

Infantino og Donald Trump.

Infantino og Donald Trump.

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti FIFA, skýtur föstum skotum á gagnrýnendur heimsmeistaramótsins og sakar þá um að spúa út hatri og röngum fullyrðingum. Hann segir að mótið hafi verið einstaklega vel heppnað og breitt út samheldni og öryggi.

Spánn stóð uppi sem sigurvegari á mótinu en það var haldið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
„Þið voruð svo upptekin af hatri og gagnrýni að þið misstuð af öllu saman,“ segir Infantino í opnu bréfi sem birt var í morgun.

„Til þeirra sem sitja bak við tölvuskjái, með pennann eða lyklaborðið að vopni, og dreifa hatri og röngum sögusögnum, vil ég segja: Á meðan þið sitjið þar, þá erum við hjá FIFA í fararbroddi – við skipuleggjum, leggjum hart að okkur og bjóðum upp á bestu sýningu í heimi. Við urðum ekki vör við ofbeldi eða óhöpp; 100% öryggi og ríkjandi stemningin einkenndist eingöngu af gleði og hamingju.“

FIFA sætti gagnrýni vegna ýmissa mála á meðan heimsmeistaramótið stóð yfir, þar á meðal varðandi vegabréfsáritanir og verðlag. Sómalski dómarinn Omar Abdulkadir Artan fékk ekki inngöngu inn í Bandaríkin og landslið Írans var ósátt við þá meðhöndlun sem það fékk.

„Íranska liðið kom til Bandaríkjanna án nokkurra vandræða eða árekstra. Liðið fékk vegabréfsáritanir því fótbolti snýst um frið; hann snýst ekki um stjórnmál. Ríki sem glíma við alvarleg heilsufarsvandamál eða aðrar áskoranir fengu vegabréfsáritanir," segir Infantino í bréfinu sem mun líklega fá talsverða gagnrýni.

Infantino segir gagnrýnendur spúa hatri
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.