27.08.26 - 20:46
Brynjar Ingi Erluson
Argentínskur landsliðsmaður í Ipswich (Staðfest) - „Traktorstrákarnir eru komnir með nýja vél“

Mynd: Ipswich Town

Mynd: Ipswich Town
Ipswich Town hefur tilkynnt kaupin á argentínska miðjumanninum Exequiel Palacios en hann kemur til félagsins frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.
Palacios er 27 ára og var hluti af liði Bayer Leverkusen sem vann bæði þýsku deildina og bikarinn árið 2024.
Hann varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022 og var einnig í landsliðshópnum sem vann silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.
Ipswich staðfesti komu Palacios í kvöld en félagið greiðir Leverkusen rúmlega 20 milljónir punda fyrir miðjumanninn. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning.
Ipswich kynnti leikmanninn til leiks með skemmtilegu myndbandi þar sem hann ekur traktor. Gælunafn félagsins er Traktorstrákarnir og þeir eru því komnir með nýja vél.

Welcome to Suffolk, buh. ???? pic.twitter.com/7mgcRgp3T0
— Ipswich Town (@IpswichTown) August 27, 2026