27.08.26 - 19:06
Brynjar Ingi Erluson
Sambandsdeildin: Kristall skoraði í ótrúlegum sigri Brann - FCK og Twente áfram

Kristall Máni og félagar í Brann unnu magnaðan sigur á PAOK og komust áfram í deildarkeppnina

Mynd: Sportsklubben Brann

FCK er komið áfram

Mynd: EPA

Þrjú Íslendingafélög hafa tryggt sér farseðilinn í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu en það óvæntasta er líklega að Brann vann 3-2 sigur á gríska stórliðinu PAOK þar sem Kristall Máni Ingason komst á skotskóna.
Brann og PAOK gerðu 1-1 jafntefli í Thessaloniki í Grikklandi í fyrri leiknum í síðustu viku, en Kristall Máni Ingason tók þá út leikbann.
Kristall sneri aftur í byrjunarliðið í kvöld ásamt Eggerti Aroni Guðmundssyni. Noah Holm kom Brann yfir undir lok fyrri hálfleiks og Kristall bætti öðru marki við snemma í þeim síðari.
PAOK svaraði með tveimur mörkum á aðeins fimm mínútum en þegar skammt var eftir fékk Brann vítaspyrnu sem Niklas Castro skoraði úr. Heimamenn héldu út, unnu 3-2 og tryggðu sér sæti í deildarkeppni Evrópu annað árið í röð, eftir að hafa leikið í Evrópudeildinni á síðasta tímabili.
Kjartan Már Kjartansson sat allan tímann á bekknum hjá Brann en Sævar Atli Magnússon var ekki í leikmannahópnum.
Kristian Nökkvi Hlynsson missti af dramatískum 4-1 sigri Twente gegn Qarabag í Aserbaísjan vegna meiðsla. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Twente skoraði tvívegis og Wout Weghorst komst meðal annars á blað.
Eyþór Martin Björgólfsson var ónotaður varamaður hjá Motherwell sem tapaði 4-1 fyrir Freiburg í Þýskalandi og féll úr leik, 7-2 samanlagt.
FCK flaug áfram með 4-1 sigri gegn finnska liðinu Inter Turku á Parken. Viktor Bjarki Daðason kom inn á í síðari hálfleik en Gunnar Orri Olsen og Rúnar Alex Rúnarsson voru ónotaðir varamenn.
Þá sló Jablonec skoska stórliðið Rangers óvænt úr leik eftir vítaspyrnukeppni, á meðan Mónakó komst örugglega áfram með 4-1 sigri á Gornik Zabrze.
Qarabag 1 - 4 Twente (2-4, samanlagt)
1-0 Kady Borges ('59 )
1-1 Marko Pjaca ('79 )
1-2 Max Bruns ('90 )
1-3 Wout Weghorst ('94 )
1-4 Younes Taha ('114 )
Rautt spjald: Marko Jankovic, Qarabag ('106)
Freiburg 4 - 1 Motherwell (7-2, samanlagt)
1-0 Derry Scherhant ('6 )
1-1 Emmanuel Longelo ('22 )
2-1 Igor Matanovic ('60 )
3-1 Cyriaque Irie ('63 )
4-1 Keisuke Goto ('85 )
Rautt spjald: Jake Girdwood-Reich, Motherwell ('57)
Monaco 4 - 1 Gornik Zabrze (7-3, samanlagt)
1-0 Paris Brunner ('30 )
2-0 Mamadou Coulibaly ('43 )
3-0 Aleksandr Golovin ('50 )
4-0 Mika Biereth ('78 )
4-1 Janis Antiste ('83 )
SK Brann 3 - 2 PAOK (4-3, samanlagt)
1-0 Noah Holm ('45 )
2-0 Kristall Ingason ('56 )
2-1 Cherif Ndiaye ('63 )
2-2 Christos Zafeiris ('68 )
3-2 Niklas Castro ('86 , víti)
FC Kobenhavn 4 - 1 Inter Turku (4-1, samanlagt)
1-0 Gabriel Pereira ('41 )
2-0 Mads Emil Madsen ('49 )
2-1 Jasse Tuominen ('68 , víti)
3-1 William Clem ('79 )
4-1 Prosper Ahiabu ('90 , sjálfsmark)