27.08.26 - 18:33
Brynjar Ingi Erluson
Forest leggur fram tilboð í lykilmann Palace

Daniel Munoz

Mynd: EPA

Daniel Munoz

Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur lagt fram tilboð í kólumbíska hægri bakvörðinn Daniel Munoz hjá Crystal Palace.
Oliver Glasner yfirgaf Crystal Palace eftir síðasta tímabil og tók við Nottingham Forest, en hann bindur miklar vonir við að endurnýja kynnin við Daniel Munoz hjá Forest.
Munoz lék stórt hlutverk í velgengni Glasner hjá Palace en undir hans stjórn vann félagið enska bikarinn, Samfélagsskjöldinn og Sambandsdeildina.
Athletic greinir frá því að Forest hafi boðið 20 milljónir punda í Munoz. Tvær milljónir til viðbótar gætu bæst við í árangurstengdar greiðslur og íhugar Palace nú tilboðið.
Bakvörðurinn þrítugi á tvö ár eftir af samningi sínum við Palace en er sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Forest.
Munoz var fastamaður í landsliði Kólumbíu á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann skoraði þar tvö mörk þegar liðið komst í 16-liða úrslit.