27.08.26 - 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Róbert Frosti skoraði tvennu í stórsigri GAIS - Daníel Tristan nýtti tækifærið

Róbert Frosti hefur verið frábær með GAIS á þessu tímabili

Mynd: GAIS

Róbert Frosti Þorkelsson skoraði tvö mörk þegar GAIS slátraði Husqvarna, 7-0, í sænska bikarnum í kvöld. Á sama tíma nýtti Daníel Tristan Guðjohnsen tækifærið með Malmö og komst á blað í 5-1 sigri gegn Lindo FF.
GAIS fór illa með Husqvarna og var komið í 3-0 í hálfleik. Róbert skoraði fyrsta mark leiksins eftir tæplega sex mínútur og bætti öðru við í síðari hálfleik þegar GAIS valtaði yfir D-deildarliðið.
Hann hefur skorað fimm mörk í deild- og bikar, en þetta er annað tímabil hans með liðinu.
Daníel Tristan fékk tækifæri í byrjunarliði Malmö eftir að hafa lítið spilað undanfarnar vikur. Hann nýtti tækifærið og skoraði fjórða mark liðsins undir lokin í öruggum 5-1 sigri gegn D-deildarliði Lindo FF.
GAIS og Malmö hafa því bæði tryggt sér sæti í riðlakeppni sænska bikarsins sem fer fram í byrjun næsta árs.