Fotbolti.net
27.08.26 - 16:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arsenal riftir við Nelson (Staðfest)

Arsenal riftir við Nelson (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Arsenal og Reiss Nelson hafa náð samkomulagi um riftun á samningi. Hann er nú frjáls ferða sinna.

Hann er 26 ára og hefur verið hjá félaginu í 18 ár. Hann kom við sögu í 90 leikjum með aðalliði félagsins, skoraði átta mörk og lagði upp níu.

Nelson var í hópnum sem vann enska bikarinn 2020 og kom við sögu þegar Arsenal vann Samfélagsskjöldinn 2017 og 2020. Hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning árið 2016.

Hann var lánaður til Hoffenheim, Feyenoord, Fulham og Brentford frá Arsenal. Vængmaðruinn á að baki 37 leiki fyrir yngri landslið Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.