Fotbolti.net
27.08.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Markahæstur á sínu fyrsta ári á Íslandi - „Átti mjög jákvætt samtal við Magga"

Þetta er ekki besta tímabilið til þessa, en vonandi klárum við það vel í lokaleiknum og gerum þetta af einu af því besta á mínum ferli

Þetta er ekki besta tímabilið til þessa, en vonandi klárum við það vel í lokaleiknum og gerum þetta af einu af því besta á mínum ferli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Joacim Holtan hefur reynst Aftureldingu virkilega vel á tímabilinu. Norski framherjinn, sem er 28 ára, er markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar, hefur skorað 15 mörk og skoraði bæði mörkin í mikilvægum sigri á Gróttu á þriðjudag.

Það var annar leikurinn í röð sem hann náði að skora tvennu og þriðja tvennan í sumar. Í ofan á lag hefur hann skorað eina þrennu. Hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fjórum leikjum liðsins.

Hann hefur líka skorað þrennu í bikarnum og alls fjögur mörk í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum þar sem Afturelding er komin í úrslit.

Afturelding getur á laugardag tryggt sér toppsætið í Lengjudeildinni og með því sæti í Bestu deildinni með sigri á Vestra. Fótbolti.net ræddi við Holtan um stöðuna og sumarið.
Seinna markið í uppáhaldi
„Það er alltaf gott að vera með stjórn á eigin örlögum. Við vitum að við erum gott lið og horfum á þetta leik fyrir leik. Það er ekkert sem er frágengið á þessum tímapunkti svo við einblínum bara á næsta leik."

„Mér fannst við sýna karakter í leiknum gegn Gróttu. Við gerðum hluti sem við höfum gert allt tímabilið, vorum góðir á boltann, hlupum og börðumst þar til dómarinn flautaði af. Lykillinn að sigrinum var góður undirbúningur þjálfarateymisins og við lögðum mikið á okkur inn á vellinum. Það og andinn í hópnum sigldi þessu heim."

„Það er alltaf gaman að skora tvö mikilvæg mörk, en mér fannst við líka verjast vel, ég er mjög ánægður að við náðum að halda markinu hreinu."

„Uppáhaldsmarkið er seinna markið, því þá vissi ég að við myndum vinna leikinn."


Skorar alltaf mörk
Ertu ánægður með tímabilið til þessa?

„Ég er ekki ánægður fyrr en tímabilið klárast og við erum búnir að klára bikarinn líka. Við höfum komið okkar í mjög góða stöðu, en við verðum að klára það sem við höfum búið til."

„Ég myndi segja það sama um mína eigin frammistöðu. Hún hefur verið góð, en það eru leikir eftir til að gera hana enn betri."

„Ég vissi að ég myndi alltaf skora mörk, því ég hef alltaf gert það, og eftir að Maggi sagði mér að hann vildi nota mig í níunni, þá vissi ég að ég myndi fá færin til að skora."


Gæti orðið eitt af hans bestu tímabilum á ferlinum
Joacim hefur á sínum ferli tvisvar sinnum skorað ellefu mörk í næstefstu deild Noregs. Hvernig berðu þetta tímabil saman við þau tímabil? Er þetta það besta á ferlinum?

„Ég, sem leikmaður sem hefur verið í mörgum félögum, með marga þjálfara, liðsfélaga og spilað eftir mörgum leikstílum, hef fundið leið til að aðlagast nýjum liðum mjög hratt. Ég hef tekið eftir því að mörkin mín hafa verið mjög mismunandi eftir liðum, en ég enda alltaf á því að koma að mjög mörgum mörkum. Þetta er ekki besta tímabilið til þessa, en vonandi klárum við það vel í lokaleiknum og gerum þetta af einu af því besta á mínum ferli."

Leið strax vel með þennan möguleika
Hvernig kom til að þú endaðir í Aftureldingu?

„Ég var með lausan samning í fyrsta sinn í um sjö ár og vildi gera eitthvað nýtt. Félagið ræddi við umboðsmanninn minn og ég átti sjálfur mjög jákvætt samtal við Magga. Strax leið mér eins og þetta væri eitthvað sem ég vildi prófa."

„Hvar eru hænurnar?"
Hvernig er lífið í Mosfellsbæ?

„Mosfellsbær er fallegur staður. Rólegur bær með mögnuðum fjöllum í kring og vinalegu fólki."

„Ég bý aðeins fyrir utan bæinn svo ég hef því ekki skoðað allt, en ég er reglulegur gestur á veitingastaðnum Oak þar sem er mjög góður matur."

„Það er erfitt að bera þetta saman við Noreg því Noregur er mjög mismunandi eftir landshlutum. Ísland fyrir mér minnir mest á vestur Noreg út af vindinum, fjöllunum og rigningardögunum."


Áttu eitthvað uppáhalds orð á íslensku?

„Ég myndi segja að 'Sælir' og 'Blessaður' væru í uppáhaldi. Og uppáhaldssetningin er 'Hvar eru hænurnar?'"

Elskar stuðningsmennina
Hvernig eru stuðningsmennirnir í Mosó?

„Ég elska stuðningsmennina okkar. Þeir eru ekkert rosalega margir, en þeir sem mæta á leikina búa til mikinn hávaða sem gefur okkur á vellinum mikla orku. Vonandi mæta þeir líka á laugardaginn, og jafnvel fleiri en venjulega, til að hjálpa okkur að ná markmiðum okkar með okkur."

Einbeittir á verkefnið
Það eru tveir leikir eftir af deildinni og svo bikarúrslit. Er auðvelt að einbeita sér alfarið að deildinni?

„Mér líður eins og hugarfarið okkar sé gott og þess vegna höfum við verið að gera vel. Við tökum einn leik fyrir í einu og spáum ekki mikið í því sem mögulega gæti gerst. Tímabilinu er ekki lokið svo það er ekkert annað til að hugsa um akkúrat núna," segir Joacim að lokum.

Næstmarkahæstu menn í deildinni eru þeir Óðinn Bjarkason, liðsfélagi Holtan, og Dominik Radic sem er leikmaður HK. Þeir hafa skorað marki minna en Holtan, eða 14 mörk. Leikur Aftureldingar og Vestra hefst klukkan 14:00 á laugardag og spilað verður á Malbikstöðinni að Varmá.
Hefur tvisvar sinnum skorað ellefu mörk í norsku B-deildinni. Hann hefur skorað 15 mörk í Lengjudeildinni og fjögur í bikarnum á þessu tímabili.

Hefur tvisvar sinnum skorað ellefu mörk í norsku B-deildinni. Hann hefur skorað 15 mörk í Lengjudeildinni og fjögur í bikarnum á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorar hér seinna markið.

Skorar hér seinna markið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrra markinu gegn Gróttu fagnað.

Fyrra markinu gegn Gróttu fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vissi að ég myndi alltaf skora mörk, því ég hef alltaf gert það, og eftir að Maggi sagði mér að hann vildi nota mig í níunni, þá vissi ég að ég myndi fá færin til að skora

Ég vissi að ég myndi alltaf skora mörk, því ég hef alltaf gert það, og eftir að Maggi sagði mér að hann vildi nota mig í níunni, þá vissi ég að ég myndi fá færin til að skora

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur skorað 15 mörk í deildinni og fjögur mörk í bikarnum.

Hefur skorað 15 mörk í deildinni og fjögur mörk í bikarnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Félagið ræddi við umboðsmanninn minn og ég átti sjálfur mjög jákvætt samtal við Magga. Strax leið mér eins og þetta væri eitthvað sem ég vildi prófa

Félagið ræddi við umboðsmanninn minn og ég átti sjálfur mjög jákvætt samtal við Magga. Strax leið mér eins og þetta væri eitthvað sem ég vildi prófa

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigrinum gegn Gróttu fagnað.

Sigrinum gegn Gróttu fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sæti í Bestu deildinni í boði á laugardag.

Sæti í Bestu deildinni í boði á laugardag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding20+3142
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta20-327
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.