Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 27. september 2020 15:23
Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið Gróttu og KA: Guðmundur Steinn á bekknum
Nökkvi Þeyr er í byrjunarliði KA á kostnað Guðmundar.
Nökkvi Þeyr er í byrjunarliði KA á kostnað Guðmundar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ástbjörn er á bekknum hjá Gróttu.
Ástbjörn er á bekknum hjá Gróttu.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Klukkan 16:15 flautar Guðmundur Ársæll Guðmundsson til leiks á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi þegar Grótta fær KA í heimsókn í Pepsi Max-deild karla. Bæði þessi lið gerðu 1-1 jafntefli í sínum leikjum í síðustu umferð. Grótta sótti stig á Meistaravelli þegar liðið heimsótti KR. KA menn gerðu sömuleiðis jafntefli við HK. Byrjunarlið liðana eru klár og má sjá þau hér fyrir neðan.

Grótta situr fyrir leikinn í dag í ellefta sæti deildarinnar með átta stig. KA menn sitja í því níunda með sextán stig.

Ágúst Gylfason gerir eina breytingu frá jafnteflinu á Meistaravöllum í síðustu umferð. Halldór Kristján Baldursson kemur inn í liðið og tekur við fyrirliðabandinu af Sigurvin Reynisson sem er í leikbanni.

Arnar Grétarsson gerir tvær breytingar frá jafntefli gegn HK. Nökkvi Þeyr Þórisson og Bjarni Aðalsteinsson koma inn í liðið. Ívar Örn Árnason og Guðmundur Steinn Hafsteinsson fá sér sæti á bekknum. Mikkel Qvist varnarmaður KA tekur út leikbann í dag.


Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Gróttu:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Arnar Þór Helgason
4. Tobias Sommer
6. Halldór Kristján Baldursson (f)
7. Pétur Theódór Árnason
10. Kristófer Orri Pétursson
16. Kristófer Melsted
19. Axel Freyr Harðarson
20. Karl Friðleifur Gunnarsson
21. Óskar Jónsson
30. Ólafur Karel Eiríksson

Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
25. Bjarni Aðalsteinsson
7. Almarr Ormarsson (f)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
30. Sveinn Margeir Hauksson
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner