Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. september 2020 19:12
Aksentije Milisic
Einkunnir Man City og Leicester: Vardy maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester City og Leicester áttust við í ensku úrvalsdeildinni í dag og úr varð mjög fjörugur leikur.

Gestirnir gerðu sér lítið fyrir og unnu glæsilega 2-5 sigur á Etihad vellinum. Jamie Vardy gerði þrennu og tvö af þeim mörkum komu af vítapunktinum. Alls fékk Leicester þrjú víti í dag en Vardy var farinn útaf þegar þriðja vítaspyrnan kom.

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðuna í dag.

Hjá heimamönnum þóttu Kevin De Bruyne og Ryhad Mahrez skárstir en báðir fengu þeir sex. Fjórir leikmenn liðsins fengu fjóra í einkunn.

Hjá Leicester var Vardy maður leiksins með níu í einkunn. Þá fékk Harvey Barnes átta eins og James Maddison sem kom inn af bekknum.

Manchester City:
Ederson (5), Walker (4), Ake (5), Garcia (4), Mendy (4), Rodri (5), Fernandinho (6), De Bruyne (6), Foden (5), Mahrez (6), Sterling (4).
Varamenn: Delap (5), Torres (5).

Leicester:
Schmeichel (7), Justin (7), Soyuncu (7), Evans (7), Castagne (8), Mendy (7), Amartey (7), Praet (7), Tielemans (7), Barnes (8), Vardy (9).
Varamenn: Maddison (8).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner