Spænski táningurinn Ansu Fati spilaði sinn fyrsta leik eftir tíu mánaða fjarveru í gær í 3-0 sigri Barcelona á Levante en hann kom með virkilega góða innkomu.
Fati kom inná sem varamaður á 81. mínútu og skoraði níu mínútum síðar með laglegu skoti fyrir utan teig.
Hann ræddi um möguleika Barcelona á þessu tímabili en hann segir að liðið ætli á eftir öllum titlum.
„Við erum Barelona. Við ætlum á eftir deildinni, Meistaradeildinni og ætlum að berjast um alla titla á þessu tímabili," sagði Fati brattur.
Börsungar eru í 6. sæti með 12 stig eftir fyrstu sex leikina á þessari leiktíð.
Athugasemdir