Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 27. september 2021 21:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Jafnt hjá Venezia og Torino
Leikmenn Torino fögnuðu ekki mikið í kvöld.
Leikmenn Torino fögnuðu ekki mikið í kvöld.
Mynd: EPA
Venezia 1 - 1 Torino
0-1 Josip Brekalo ('56 )
1-1 Mattia Aramu ('78 , víti)
Rautt spjald: Koffi Djidji, Torino ('77)

Venezia fékk Torino í heimsókn í lokaleik sjöttu umferðarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en það var markalaust í hálfleik. Ethan Ampadu lánsmaður frá Chelsea kom inná í lið Venezia undir lok fyrri hálfleiksins.

Gestirnir komust yfir um miðjan síðari hálfleikinn en Venezia jafnaði metin undir lok leiksins með marki úr vítaspyrnu.

Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hóp Venezia í dag og Arnór Sigurðsson er enn frá vegna meiðsla.

Venezia á leik í botnbaráttunni í næstu umferð er liðið mætir Cagliari. Venezia er í 18. sæti með 4 stig en Cagliari í því nítjánda með tvö stig.
Athugasemdir
banner