Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Maradona hringdi eftir stór töp
Mynd: Getty Images
„Ég er miður mín að hafa ekki náð að eyða meiri tíma með honum. Ég hefði elskað það," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, þegar hann var spurður út í Diego Maradona.

Maradona lét lífið í fyrradag, sextugur að aldri, en hann og Mourinho náðu vel saman.

„Fjölskylda hans og vinir njóta forréttinda að hafa þekkt hann vel og fengið að eyða tíma með honum."

„Ég þekkti hann nokkuð vel og hann hringdi alltaf í mig eftir stærstu töpin hjá mér en aldrei eftir stærstu sigrana."

„Ég mun sakna Diego. Ég er mhjög leiður yfir þessu en á sama tíma er ég brosandi því við hlógum saman hverja einustu mínútu sem við vorum saman."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner