Norska markamaskínan Erling Braut Haaland sneri áðan aftur eftir meiðsli.
Hann kom inn á sem varamaður og var ekki lengi að láta til sín taka þegar Borussia Dortmund fór með sigur af hólmi gegn Wolfsburg á útivelli, 1-3.
Haaland skoraði sjö mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.
Hann fagnaði með því að benda á stuðningsfólk Wolfsburg upp í stúku og fékk hann ekki blíðar móttökur, sérstaklega frá einni konu sem var ekki skemmt.
Það eru allar líkur á því að hún hafi gefið Haaland fingurinn, þó það sjáist ekki þar sem hún var í vettlingum.
Hægt er að sjá þetta kostulega myndband hér að neðan.
Happy to be back doing what I love 🔥 ⚫🟡 @bvb09 pic.twitter.com/Hv4NzqSnAg
— Erling Haaland (@ErlingHaaland) November 27, 2021
This is the best video you will see today…😂😂😂 pic.twitter.com/Lh8ncA2MCK
— Jonas. 🇳🇴 (@CFC_Alsaker) November 27, 2021
Athugasemdir