Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 27. nóvember 2022 07:00
Elvar Geir Magnússon
Benedikt Bóas spáir í Japan - Kosta Ríka
Tvífarar dagsins Cristiano Ronaldo og Benedikt Bóas.
Tvífarar dagsins Cristiano Ronaldo og Benedikt Bóas.
Mynd: Samsett
Japan byrjaði HM á óvæntum sigri gegn Þýskalandi en í dag leikur liðið gegn Kosta Ríka í morgunleiknum.

Blaðamaðurinn og sjónvarpsmaðurinn síkáti Benedikt Bóas Hinriksson er spámaður Fótbolta.net fyrir þennan leik. Mælum með Íþróttavikunni á Hringbraut á föstudagskvöldum!



Japan 4 - 0 Kosta Ríka
Kosta Ríka er fallbyssufóður á þessu móti. Sjö núll tap gegn Spánverjum í fyrsta leik og ég ætla að giska að Luis Fernando Suarez þjálfari sé ekki búinn að finna nein svör frá þeim leik.

Þetta verður því gönguferð í garðinum fyrir Japani sem munu vekja aftur athygli fyrir að ganga frá í klefanum eftir leik. Þeir munu skora tvö í fyrri hálfleik og tvö undir lokin. Krúsa rólega í 4-0.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner