Fotbolti.net
26.11.26 - 17:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki nógu góður þjálfari"

Frábær staður til að byrja þjálfaraferilinn

Bjarni lék lengi erlendis á sínum ferli.

Bjarni lék lengi erlendis á sínum ferli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þór Viðarsson var í gær kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH en hann tekur við starfinu af Árni Freyr Guðnason sem óskaði sjálfur eftir því að færa sigt til í starfi hjá félaginu.

Bjarni hefur verið þjálfari 2. flokks FH í rúman mánuð og mun sinna því starfi áfram. Hann er fyrrum atvinnumaður, uppalinn hjá FH og varð Íslandsmeistari sem leikmaður félagsins. Í meistaraflokknum verður Bjarni aðstoðarmaður Jóhannesar Karls Guðjónssonar sem tók við liðinu fyrir um ári síðan.

Bjarni ræddi við Fótbolta.net í dag.
Mjög spennandi umhverfi
„Þetta er áhugavert, ég hef mikið verið í kringum FH en kannski mikið í þjálfun. Þegar það var komið að orði við mig hvort þetta væri einhver möguleiki þá fannst mér þetta mjög áhugavert. Ég er með UEFA B þjálfaragráðu og búinn með MIP sem er meira stjórnunarnám. En það eru margir 'sporting directorar' sem hafa orðið þjálfarar og einnig í hina áttina. Mér finnst þetta bara mjög spennandi, umhverfið, yngri flokkarnir og allt sem er að gerast hjá FH, þá fannst mér þetta kjörið tækifæri að koma inn í þetta."

„Mér finnst áhugavert að vinna með Jóa, tók nokkra fundi með honum og hans hugmyndir eru mjög góðar og ég hlakka til að læra af honum,"
segir Bjarni.

„Það er mjög gaman að starfa í fótboltanum, ég hef þjálfað áður há FH, tók þjálfaragráðuna hér og hef verið með séræfingar og annað. Ég er búinn að þjálfa 2. flokkinn í rúman mánuð og líkar það vel, held ég alveg hafi þetta í mér. Það er gaman að vera úti á velli og reyna að kenna, hjálpa og vera eitthvað klókur varðandi taktík og annað."

„Það er alveg sama hvað það er, semja við leikmenn, skoða leikmenn eða taka einhverjar erfiðar ákvarðanir, mér finnst bara mjög skemmtilegt að vinna við allt sem tengist fótbolta."


Kynntist Jóa Kalla fyrir tæpum 30 árum
Hvernig var samtalið við Jóa Kalla?

„Ég náttúrulega þekkt Jóa Kalla ágætlega, kynntist honum fyrst þegar hann var að spila með Genk '98 minnir mig. Ég var reyndar frekar ungur þá."

„Ég er mjög hrifinn af Jóa Kalla sem þjálfara, hann er yfirvegaður og með áhugaverður áherslur. Þegar hann var ráðinn til FH leist mér mjög vel á það og spjöllin sem ég átti við hann voru mjög góð. Bæði varðandi stefnu félagsins, hvernig fótbolta við viljum spila, hvernig leikmenn við viljum ala upp. Við áttum líka mjög gott spjall um það sem FH-liðið þarf að bæta, það vita allir að þetta var ekkert draumatímabil en liðið bætti sig heilmikið þegar leið á. Við ræddum hluti eins og kúltúr sem hægt og rólega er að verða betri og þarf að vera betri."


Býr yfir mikilli reynslu af ferlinum
Bjarni er 38 ára og lagði skóna á hilluna fyrir tæpum áratug síðan. Á leikmannaferlinum var hann á mála hjá Everton, Bournemouth, Twente, Roeselare, Mechelen, Silkeborg og FH. Hann lék heilan helling af leikjum fyrir yngri landsliðin og einn A-landsleik.

Heldur þú að þú getir nýtt þína reynslu og miðlað til strákanna?

Jú, pottþétt, ég held ég geti gert það. Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki alveg nógu góður þjálfari. Ég tala nú ekki um ég og Jói Kalla saman, þá þurfum við að hugsa okkar gang," segir Bjarni á léttu nótunum.

„Það er margt sem maður getur gefið þeim, hvort sem það er fótbolti eða annað varðandi eitthvað fyrir utan völlinn eins og t.d. aktífa hvíld. Maður mun reyna að miðla því, hjálpa þeim og vera aðeins á bakinu á þeim, en þó aðallega jákvæður."

Vilja vinna á ákveðinn hátt
Án þess að setja út á það sem var áður, ertu að koma inn og viltu breyta einhverju sem var, eða ertu að koma inn í sama mót?

„Ég vil að FH sæki fleiri stig, vil að við lifrum aðeins ofar. Ég vil að áherslurnar Jóa verði kannski sýnilegri. Það er mitt starf að hjálpa til við það, vera mikið í greiningarvinnu og ýta því meira að hvað við erum að reyna að gera samkvæmt okkar stefnu."

„Ég held að það taki allt að tvö ár, jafnvel meira, að breyta algjörlega um kúrs. Auðvitað snýst þetta náttúrulega þegar allt kemur til alls um að vinna leiki og við gerum okkur alveg grein fyrir því. En við viljum gera það á ákveðinn hátt og það er mitt starf líka að ýta því að að það sé gert á þann hátt. Sóknarlega tel ég mig geta hjálpað til við það og bætt okkur sem lið."


Eftir að Bjarni lagði skóna á hilluna fór hann í fyrirtækjarekstur ásamt konu sinni. Fyrirtækið var selt 2022. Hann hefur unnið hjá Símanum m.a. sem sérfræðingur í kringum enska boltann og á síðasta ári vann hann í stuttan tíma hjá Genius Sports í kringum belgísku deildina en hætti út af forsendubresti.

Átti samtöl við Stjörnuna og Val
Eins og Bjarni sagði frá áðan er hann með MIP gráðu frá UEFA. Það voru sögur um samtöl við Stjörnuna og Val varðandi þann möguleika að Bjarni tæki við starfi sem yfirmaður fótboltamála þar.

„Það var haft samband við mig frá báðum félögum, átti spjall við þá. En að lokum gekk það ekki upp. Mér finnst mikilvægt að taka spjöllin og vita hvað aðrir eru að pæla. En niðurstaðan að verak kominn hingað í FH er frábær fyrir mig. Ég útiloka ekki í framtíðinni að fara annað, en þetta er frábær staður til að byrja."

„FH ræturnar eru sterkar, sem er gott. Ég þarf samt að læra að beisla þá orku rétt í nýju starfi. Það er ekki alltaf hægt að vera að missa sig og vera brjálaður. Ég þarf að fókusa á það sem ég á að sjá um, aðstoðarþjálfarahlutverkið."


Davíð mikill fagmaður
Davíð Þór, eldri bróðir Bjarna, er yfirmaður fótboltamála hjá FH. Er skrítið að hafa hann sem einhvers konar yfirmann?

„Nei, það er alls ekki skrítið. Davíð er náttúrulega mikill fagmaður í því sem hann gerir, búið að vera mikið að gera hjá honum síðustu fjögur ár í þessu starfi, mikið gengið á og mikið af breytingum hjá félaginu. Ég verð svo sem ekki mikið með honum, ég verð með Jóa, nýjum transition-þjálfara (á eftir að fá inn mann eftir Steven Lennon fór í Fylki), Kjarra Sturlu markmannsþjálfara og Ben styrktarþjálfara."

Mjög hrifinn af stefnunni
FH fór í talsvert miklar breytingar fyrir um ári síðan. Breytt var um áherslur hjá félaginu, yngri leikmenn fengu fleiri mínútur á síðasta tímabili og stefnt að því að félagið geti orðið sjálfbært með leikmannasölum.

Þú verandi mikill FH-ingur, hvað finnst þér um stefnuna og hvernig þetta er að þróast hjá FH?

„Ég er auðvitað mjög hrifinn af henni og hafði náttúrulega skoðun á henni á sínum tíma. Það sem fólk og stuðningsmenn horfa á eru auðvitað stig og sigrar og ég skil það vel og það á allt að vera þannig. En ég tel að með þessari stefnu og með því sem við ætlum að gera, getum við ýtt því í þá átt að við séum með mjög gott lið sem er samt nokkuð ungt og verið að berjast um eitthvað. En auðvitað gæti þetta tekið tíma, vona að það taki stuttan tíma. En það eru allir að vilja gerðir hérna í Krikanum að láta það gerast."

„Ég held að þau félög sem gera vel í þessum hlutum, ná að tengja 2.-3. flokk upp í meistaraflokk, bæði karla og kvenna, tel að til lengri tíma verði þau félög aðeins ofan á. Það er mín skoðun og síðan kemur kannski eitthvað annað í ljós,"
segir Bjarni.
Mættur til starfa hjá uppeldisfélaginu.

Mættur til starfa hjá uppeldisfélaginu.

Canon

Mynd: FH

„Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki nógu góður þjálfari"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bræðurnir Bjarni og Davíð ásamt foreldrum sínum.

Bræðurnir Bjarni og Davíð ásamt foreldrum sínum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Jói Kalli tók við sem þjálfari FH fyrir um ári síðan.

Jói Kalli tók við sem þjálfari FH fyrir um ári síðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki nógu góður þjálfari"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki nógu góður þjálfari"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á fjöldan allan af leikjum af baki í bláu treyjunni.

Á fjöldan allan af leikjum af baki í bláu treyjunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ekki alltaf hægt að vera að missa sig og vera brjálaður

Það er ekki alltaf hægt að vera að missa sig og vera brjálaður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ef ég get ekki gert miðjumann í FH betri þá er ég ekki nógu góður þjálfari"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.