Fotbolti.net
26.11.26 - 17:27
Elvar Geir Magnússon

Staðfestir að Freysi stýri gegn Molde - Er vilji leikmanna

Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, hefur staðfest að Freyr Alexandersson muni stýra Rosenborg á laugardaginn.

„Við höfum rætt innanbúðar með leikmönnum og starfsmönnum og höfum tekið þá ákvörðun að Freyr stýri á laugardaginn. Við teljum það best fyrir Rosenborg," sagði Alfreð við Adresseavisen eftir æfingu í dag.

Það er mikil óvissa hjá Rosenborg en útlit er fyrir að Freyr taki við Swansea í Championship-deildinni.
„Martraðarstaða fyrir Alfreð“
TENGT EFNI

„Martraðarstaða fyrir Alfreð“

Freyr vill ekki yfirgefa Rosenborg á erfiðum tímapunkti þar sem liðið er í harðri baráttu um Evrópusæti og þrír leikir eru eftir. Rosenborg mætir Molde í gríðarlega mikilvægum leik á laugardag.

Sky Sports greindi svo frá því í dag að bráðabirgðastjórinn Ashley Williams verði á hliðarlínunni þegar Swansea tekur á móti Cardiff í grannaslagnum, slagnum um Wales, á sunnudag. Swansea situr í 8. sæti ensku Championship-deildarinnar á meðan Rosenborg er í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Jonas Svensson, fyrirliði Rosenborgar, sagði við Nettavisen að hann hefði talað við félagið fyrir hönd leikmanna og lýst yfir því að vilji hópsins væri að Freyr myndi halda um stjórnartaumana á laugardaginn.

„Ég og Alfreð töluðum saman. Ákvörðunin er ekki okkar en það var ósk okkar leikmanna allavega að Freyr myndi stýra leiknum," segir Svensson við Nettavisen.
Staðfestir að Freysi stýri gegn Molde - Er vilji leikmanna
Canon

Mynd: Samsett

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.