Fotbolti.net
27.11.26 - 23:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Þórir Jóhann með fína innkomu

Ítalía: Þórir Jóhann með fína innkomu
Canon

Mynd: Venezia FC

Venezia 0 - 0 Bologna
Þórir Jóhann Helgason kom við sögu þegar Venezia gerði markalaust jafntefli gegn Bologna í ítölsku deildinni í kvöld.

Redouane Halhal skoraði fyrir Venezia eftir stundafjórðung en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Þórir kom inn á sem varamaður eftir um klukkutíma leik. Hann átti fyrirgjöf úr aukaspyrnu strax í kjölfarið en Juan Jesus skallaði í stöngina af stuttu færi á fjærstönginni.

Þórir átti síðan skot fyrir utan teiginn undir lokin en Lukasz Skorupski kom fætinum í boltann.

Venezia er í 19. sæti með 7 stig, stigi frá öruggu sæti. Bologna er í 8. sæti með 19 stig og mistókst að jafna Juventus að stigum sem er í 6. sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Bologna13+219
9Napoli12+518
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Venezia13-177
20Udinese12-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.