Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. janúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spila Pedro og Iniesta saman í Japan?
Mynd: Getty Images
Pedro er kominn ansi aftarlega í goggunarröðina hjá Chelsea. Pedro fékk loks að spila um helgina þegar hann spilaði gegn Hull í bikarnum.

Þessi 32 ára vængmaður rennur út á samningi í sumar og nú hefur japanskt lið sýnt honum áhuga.

Vissel Kobe í Japan er sagt undirbúa það að fá Pedro til félagsins. Fari Pedro til Vissel þá hittir hann þar fyrir Andres Iniesta, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Barcelona.

Pedro hefur einungis leikið tólf leiki með Chelsea á leiktíðinni, þar af einungis verið fjórum sinnum í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni.

Barcelona er einnig sagt hafa áhuga á vængmanninum og í gær var hann orðaður við Inter Miami.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner