Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 28. janúar 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jill Scott til Everton (Staðfest) - Langar til Tókýó
Mynd: Getty Images
Hin margreynda Jill Scott er komin til Everton á láni frá Manchester City út þetta tímabil.

Scott er 33 ára gömul og á að baki 149 landsleiki fyrir England. Hún hefur spilað minna á þessu tímabili fyrir Man City en venjulega eftir að félagið samdi við bandarísku landsliðskonuna Sam Mewis.

Hún ákvað því að fara til Everton þar sem hún spilaði frá 2006 til 2013 en hún vonast til að spila með Bretlandi á Ólympíuleikunum í Tókýó næsta sumar.

„Jill vonast til að fara á Ólympíuleikana með Bretlandi. Við viljum hjálpa okkar leikmönnum eins mikið og hægt er," sagði Gareth Taylor, þjálfari Manchester City.

Everton er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Man City er í þriðja sæti.
Athugasemdir
banner
banner