28.01.21 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Yannick Bolasie til Middlesbrough á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur fengið kantmanninn Yannick Bolasie á láni frá Everton út tímabilið.
Hinn 31 árs gamli Bolasie hefur ekki náð flugi síðan hann kom til Everton frá Crystal Palace árið 2016.
Hjá Crystal Palace spilaði hann undir stjórn Neil Warnock sem er stjóri Middlesbrough í dag.
Bolasie hefur áður verið nálægt því að ganga í raðir Middlesbrough og félagið hefur nú náð að klófesta hann.

„Við búumst ekki við kraftaverkum en hann er góður strákur og hann getur spilað í mismunandi stöðum. Hann verður góður í búningsklefanum og þetta er styrkur fyrir okkur," sagði Bolasie.