Fotbolti.net
28.01.25 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Malacia má fara ef Dorgu kemur

Malacia má fara ef Dorgu kemur
Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að Manchester United sé eingöngu reiðubúið til að lána Tyrell Malacia út á lokadögum janúargluggans ef félaginu tekst að krækja í annan bakvörð.
Rauðu djöflarnir eru að reyna að kaupa hinn 19 ára gamla Patrick Dorgu frá Lecce. Man Utd er tilbúið til að bjóða 35 milljónir evra en ítalska félagið vill fá 40 milljónir fyrir leikmanninn.

Malacia er 25 ára gamall og hefur ekki náð sér á strik eftir slæm hnémeiðsli sem héldu honum frá keppni í rúmt ár. Hann er ekki talinn vera partur af áformum Rúben Amorim fyrir tímabilið en Man Utd þarf að finna mann til að fylla í skarðið.

Luke Shaw er meiddur og því hafa hægri bakverðirnir Noussair Mazraoui og Diogo Dalot verið að leysa stöðu vinstri vængbakvarðar undir stjórn Amorim, með Malacia á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.