Fotbolti.net
28.02.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England: Jafnt í baráttu liða sem ætla sér í Evrópukeppni

Evanilson gerði jöfnunarmark Bournemouth.

Evanilson gerði jöfnunarmark Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Bournemouth 1 - 1 Sunderland
0-1 Eliezer Mayenda ('18 )
1-1 Evanilson ('64 )
Byrjunarliðin á Englandi: Hákon Rafn byrjar
TENGT EFNI

Byrjunarliðin á Englandi: Hákon Rafn byrjar

Granit Xhaka sneri aftur í byrjunarlið Sunderland er liðið gerði jafntefli gegn Bournemouth í hádegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Sunderland tók forystuna eftir aðeins meira en stundarfjórðung þegar Eliezer Mayenda skoraði.

Staðan var 0-1 í hálfleik en heimamenn jöfnuðu sanngjarnt um miðbik seinni hálfleiks þegar Brasilíumaðurinn eftir fyrirgjöf frá Marcus Tavernier.

Bournemouth voru líklegri til að gera sigurmarkið en það tókst ekki og jafntefli niðurstaðan.

Það munar tveimur stigum á þessum liðum, Bournemouth er í áttunda sæti og Sunderland í ellefta sæti. Bæði lið vonast eflaust til að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.