Fotbolti.net
28.02.26 - 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Liðsfélagi Hákonar búinn að skora tvisvar hjá honum

Hákon Rafn Valdimarsson er að spila sinn þriðja leik í ensku úrvalsdeildinni.

Hákon Rafn Valdimarsson er að spila sinn þriðja leik í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon Rafn Valdimarsson er búinn að fá þrjú mörk á sig gegn Burnley í leik sem er núna í gangi í ensku úrvalsdeildinni.

Enginn draumaleikur hjá Hákoni til þessa þó hann hafi lítið getað gert í þessum mörkum. Það hjálpar ekki að liðsfélagi hans, Michael Kayode, er búinn að setja boltann tvisvar í eigið net.
Ástæðan fyrir því að Hákon Rafn byrjar
TENGT EFNI

Ástæðan fyrir því að Hákon Rafn byrjar

Fyrsta mark Burnley var skráð á Kayode en ekki annað markið þó boltinn hafi farið af honum.

„Kayode! Hvaða þvæla er þetta. Hættu nú. Hausinn hans á leið á öll píluspjöld á Seltjarnarnesi. Bæði skotin á leið lengst fram hjá. Skráum þetta sem clean sheet so far hjá Mr. Valdimarsson," skrifaði Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, á X-ið en svo bætti Zian Flemming við þriðja marki Burnley.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.