David Moyes, stjóri Everton, sagðist hafa skellihlegið þegar Jordan Pickford átti heimsklassa markvörslu frá ítalska miðjumanninum Sandro Tonali undir lok leiks í 3-2 sigri liðsins á Newcastle United í dag.
Everton-liðið gaf sig aldrei. Newcastle jafnaði tvisvar en Everton svaraði fljótlega eftir bæði mörkin. Moyes var ánægður með framlag sinna manna.
„Þetta var ótrúlega góður leikur. Frábær frammistaða frá leikmönnunum og það er aldrei auðvelt að koma á St. James' Park og vinna. Þetta er rosalega gott lið sem er alltaf að bæta sig þannig það er bara yndislegt að ná í öll stigin.“
„Við gáfum Newcastle aldrei tækifærið til að njóta augnabliksins. Ég verð að hrósa leikmönnunum og hugarfari þeirra. Þeir héldu áfram og náðu í úrslit gegn góðu liði,“ sagði Moyes.
Hann var spurður út í vörsluna sem Pickford átti undir lokin er hann varði þrumufleyg Tonali í slá og yfir.
„Ég skellihló. Ég ætlaði að hlaupa aftur inn á völlinn og fagna vörslunni. Sandro Tonali smellhitti boltann og bara tæknilega stórkostlegt skot, en varslan var í heimsklassa. Jordan spilaði vel í dag og hjálpaði okkur mikið. Þessi varsla var eitthvað annað!“ sagði Moyes.
Pickford’s great save vs Newcastle.
by
u/Sparky-moon in
soccer
Athugasemdir



