28.02.26 - 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Sociedad vann án Orra - Þolinmæðisvinna hjá Atlético

Sociedad vann Real Mallorca

Mynd: EPA

Julian Alvarez skoraði á fjórðu mínútu í uppbótartíma

Mynd: EPA

Sociedad vann Real Mallorca

Mynd: EPA
Spænsku liðin Atlético Madríd og Real Sociedad unnu nauma sigra í La Liga á Spáni í dag.
Sociedad var án Orra Steins Óskarsson, sem hafði verið sjóðandi heitur í síðustu leikjum liðsins.
Liðið heimsótti Real Mallorca og hafði þar 1-0 sigur, en sigurmarkið gerði Carlos Soler á 36. mínútu.
Sigurinn þýðir að Sociedad er í 7. sæti með 35 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.
Julian Alvarez sótti þá dýrmætan 1-0 sigur fyrir Atlético Madríd úti gegn Real Oviedo með marki í uppbótartíma síðari hálfleiks.
Heimamenn í Oviedo fengu mörg ágætis færi og verðskuldaði að minnsta kosti stig úr leiknum, en Alvarez hélt nú ekki og gerði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma.
Mikilvægt hjá Atlético sem er í 3. sæti deildarinnar með 51 stig á meðan Oviedo er á botninum með 17 stig.
Mallorca 0 - 1 Real Sociedad
0-1 Carlos Soler ('36 )
Oviedo 0 - 1 Atletico Madrid
0-1 Julian Alvarez ('90 )

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 9 | +30 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 9 | +14 | 21 |
| 4 | Betis | 9 | +2 | 19 |
| 5 | Real Sociedad | 9 | 0 | 16 |
| 6 | Sevilla | 9 | -2 | 14 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 9 | Athletic | 9 | +1 | 12 |
| 10 | Celta | 9 | +3 | 11 |
| 11 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 12 | Osasuna | 9 | -8 | 11 |
| 13 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 14 | Levante | 9 | -2 | 10 |
| 15 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 16 | Getafe | 10 | -8 | 9 |
| 17 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |