Chelsea hefur tjáð það að félagið geti keypt Nicolas Tagliafico, vinstri bakvörð Ajax og hollenska landsliðsins, á 22,4 milljónir punda í næsta félagaskiptaglugga.
Um þetta skrifar Matt Law, blaðamaður Telegraph.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, vill fá nýjan vinstri bakvörð í leikmannahóp sinn og er með augastað á Ben Chilwell, bakverði Leicester.
Leicester metur hins vegar Chilwell á meira en 40 milljónir punda og er Tagliafico því mun ódýrari kostur. Hvort að Lampard vilji fá Tagliafico á eftir að koma í ljós.
Chelsea er nú þegar búið að kaupa Hakim Ziyech frá Ajax, en Tagliafico hefur talað um að hann vilji fara í stærri deild.
Athugasemdir