Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 28. maí 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stubbur spáir í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar
Lengjudeildin
Ólafur Aron eftir að hann skoraði vafasamt mark
Ólafur Aron eftir að hann skoraði vafasamt mark
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Steinþór Már
Steinþór Már
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fjórða umferð Lengjudeildarinnar fer fram í kvöld og á morgun. Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, er spámaður umferðarinnar hér á Fótbolti.net.

Axel Óskar Andrésson var með 3 rétta og spáði til um hárrétt úrslit í leik Víkings Ó. og Kórdrengja.

Þór 4 - 3 Afturelding (Í kvöld, 18:00)
Þór vinnur þennan leik þar sem KA mennirnir Ólafur Aron Pétursson og Bjarki Þór Viðarsson skora sitthvort markið og Jóhann Helgi eitt, þjálfarar Þórs fá báðir gult spjald fyrir tuð. Kristófer Óskar Óskarsson, vinur hans Andra Friðriks, skorar tvö fyrir Aftureldingu.

Vestri 2 - 1 Grindavík (Í kvöld, 19:00)
Mínir menn í Vestra vinna þetta í hörkuleik þar sem Pétur Bjarnason skorar sigurmarkið í uppbótartíma.

Kórdrengir 3 - 2 Þróttur R. (Í kvöld, 19:15)
Kórdrengir vinna þennan 3-2 þar sem Kairo skorar tvö mörk fyrir Þrótt.

Fjölnir 1 - 1 Fram (Í kvöld, 19:15)
Lokaður leikur þar sem bæði mörkin koma eftir fast leikatriði.

Selfoss 1 - 3 Grótta (Í kvöld, 19:15)
Pétur Theódór heldur áfram að setja þrjú og Gary Martin minnkar muninn undir lokin.

ÍBV 4 - 0 Víkingur Ólafsvík (Á morgun, 15:00)
Auðveldur skyldusigur hjá Eyjamönnum

Fyrri spámenn:
Axel Óskar - 3 réttir
Úlfur Blandon - 3 réttir
Rúnar Þór - 2 réttir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner