28.06.15 - 15:45
Arnar Geir Halldórsson
Phil Neville nýr aðstoðarþjálfari Valencia (Staðfest)

Phil Neville er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images

Phil Neville er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildarliðið Valencia hefur ráðið Phil Neville til starfa en hann mun verða aðstoðarþjálfari liðsins.
Neville sem er 38 ára var í þjálfaraliði Man Utd þegar David Moyes stýrði félaginu og var aðstoðarmaður Ryan Giggs þegar hann tók tímabundið við eftir að Moyes var látinn fara.
Þá hefur hann einnig verið í þjálfarastörfum hjá enska knattspyrnusambandinu.
Hann tekur við starfinu hjá Valencia af Skotanum Ian Cathro sem mun starfa hjá Newcastle á næstu leiktíð.
Neville sem er 38 ára gamall starfaði síðasta vetur sem sérfræðingur í sjónvarpi.
Nuno Espirito Santo, stjóri Valencia, er í skýjunum með ráðninguna.
„Phil Neville hefur mikla reynslu af hæsta stigi fótboltans. Hann hefur mikla þekkingu sem mun nýtast okkar liði. Hann hefur alltaf verið mikill liðsmaður og við leggjum mikla áherslu á samheldni\", sagði Nuno um ráðninguna.
Valencia lenti í 4.sæti La Liga á síðustu leiktíð og mun því taka þátt í forkeppni Meistaradeildarinnar í sumar.

Heimild: Valencia