Byrjunarlið FH og ÍBV: Tvær breytingar FH - Enginn Sigurður Arnar hjá ÍBV

Sigurður Arnar Magnússon ekki með ÍBV í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Óli Ólafsson mættur aftur fyrir FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Arnar Magnússon ekki með ÍBV í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á Kaplakrikavellinum í dag klukkan 17:00 fer fram leikur FH og ÍBV í Bestu Deild karla. Leikurinn er hluti af 12.umferð.
Fyrir leik eru FH á botni deildarinnar (12.sæti) með 6 stig. ÍBV sitja í 9.sæti með 11stig.
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu byrjunarliði eftir 1-1 jafntefli við Þór í síðasta leik. Inn kemur Ísak Óli Ólafsson og ber bandið í dag. Einnig kemur Arngrímur Bjartur í liðið en Kristján Snær Frostason fer á bekkinn og Tobias Carlsson er utan hóps vegna meiðsla.
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV gerir eina breytingu eftir góðan 2-1 sigur gegn Stjörnunni. Sú breyting er að Sigurður Arnar Magnússon er ekki með ÍBV í dag. Hann kláraði leikinn gegn Stjörnunni eftir að hafa fegnið mögulegan heilahristing rétt fyrir leikslok vegna þessa að ÍBV voru búnir með skiptingarnar sínar. Felix Örn Friðriksson tekur sæti í byrjunarliðinu.
Byrjunarlið FH
- 1. Jökull Andrésson (m)
- 6. Grétar Snær Gunnarsson
- 7. Kjartan Kári Halldórsson
- 9. Kristján Flóki Finnbogason
- 14. Adolf Daði Birgisson
- 19. Aron Jónsson
- 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
- 23. Tómas Orri Róbertsson
- 33. Úlfur Ágúst Björnsson
- 37. Baldur Kári Helgason
- 38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
Byrjunarlið ÍBV
- 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
- 4. Mattias Edeland
- 7. Sesar Örn Harðarson
- 8. Bjarki Björn Gunnarsson
- 9. Liam Daði Jeffs
- 22. Eiður Atli Rúnarsson
- 23. Arnór Ingi Kristinsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 26. Felix Örn Friðriksson
- 27. Róbert Elís Hlynsson
- 30. Vicente Rafael Valor Martínez

Ísak Óli Ólafsson mættur aftur fyrir FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
